Marokkóskt lambalæri með kúskússalati
Lýsing
Ljúffeng uppskrift úr jólatölublaði Gestgjafans 2011.
Hráefni
í stuttu máli
Erfiðleikastig
Eldunaraðferð
Hluti
Fjöldi
6-8
1 lambalæri, helst án lykilbeins
Kryddlögur:
150 g smjör, við stofuhita 2 msk. kóríander, smátt saxaður 5 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 2 tsk. kummin, steytt 2 tsk. reykt paprikuduft eða venjulegt 2 tsk. harissa eða annað chili-mauk 2 tsk. salt 2 tsk. nýmalaður pipar
Setjið allt í skál og blandið vel saman.
Leiðbeiningar
Stingið 10-15 göt í lambalærið með hníf, nuddið kryddleginum vel inn í lærið og geymið við stofuhita í 4-6 klst.
Setjið þá lærið í ofnskúffu og bakið við 150°C í 1 ½-2 klst.
Ausið úr ofnskúffunni yfir lærið á 15 mín. fresti.
Takið lærið úr ofninum og látið standa í 10-15 mín. áður en það er borið fram.
Berið lærið fram með kúskússalati og t.d. fersku salati og grænmeti.
Kúskússalat:
1 tsk. salt 4 dl vatn 1 dl rúsínur 1 dl apríkósur, skornar í litla bita allur vökvinn úr ofnskúffunni 1 tsk. kummin 1-2 msk. mynta, smátt söxuð 1-2 msk. kóríander, smátt saxaður 4 dl kúskús
Setjið allt nema myntu, kóríander og kúskús í pott og sjóðið í 5 mínútur.
Bætið þá kryddi og kúskús í pottinn og takið af hellunni. Látið standa í 15 mín. undir loki.
|
|