Léttsteikt lamba-fillet með villisveppasósu
Lýsing
Hátíðaruppskrift úr jólatölublaði Gestgjafans 2011.
Hráefni
í stuttu máli
Erfiðleikastig
Eldunaraðferð
Hluti
Fjöldi
4
800 g lamba-fillet með eða án fitu salt og nýmalaður pipar 2 msk. olía 100 g flúðasveppir, skornir í báta 200 g ferskir villisveppir, skornir í báta, eða 40 g þurrkaðir, lagðir í volgt vatn í 20 mínútur 1 dl portvín ½ dl brandí 2 ½ dl rjómi 1 tsk. nautakjötskraftursósujafnari
Leiðbeiningar
Saltið kjötið og kryddið með pipar og steikið upp úr olíu á öllum hliðum þar til það er orðið fallega brúnað. Takið þá kjötið og setjið í ofnskúffu.
Steikið sveppi á sömu pönnu í 2 mínútur.
Bætið portvíni og brandíi á pönnuna og sjóðið niður um ¾.
Hellið rjóma út í, bætið síðan kjötkrafti saman við og þykkið með sósujafnara.
Bragðbætið með salti og pipar.
Setjið lambakjötið inn í 180°C heitan ofn í 3 mínútur.
Takið þá kjötið úr ofninum og látið standa í 3 mínútur.
Endurtakið þangað til kjötið hefur verið samtals 12 mínútur í ofninum.
Skerið kjötið í fallegar sneiðar og berið fram með sósunni og t.d. steiktum kartöflustrimlum og grænmeti.
|
|