Heilsteiktur lambahryggur með tómötum, basilíku og hvítlauk
Hráefni
í stuttu máli
Erfiðleikastig
Eldunaraðferð
Hluti
Skammtar
4-6
1 lambahryggur salt og nýmalaður pipar 2 rósmaríngreinar eða 1 tsk. þurrkað rósmarín 4 tímíangreinar eða ¾ tsk. þurrkað tímían 1 heill hvítlaukur ½ búnt basilíka, söxuð 20 fetaostteningar 2 msk. furuhnetur (má sleppa) 10 svartar ólífur 12 kirsuberjatómatar
Leiðbeiningar
Skerið sitt hvoru megin við hryggjarsúluna, niður að rifbeinunum.
Kryddið allan hrygginn með salti og pipar.
Leggið rósmarín og tímína ofan í skurðinn sitt hvoru megin við hryggjarsúluna.
Setjið hrygginn í ofnskúffu ásamt heilum hvítlauk og bakið í 50 mín. við 180°C.
Takið þá hvítlaukinn úr ofninum og losið geirana í sundur. Setjið þá í skál ásamt basilíku, fetaosti, furuhnetum, ólífum og tómötum, blandið vel saman og kryddið með salti og pipar.
Leggið blönduna ofan á hrygginn og bakið hann í 10 mín. til viðbótar.
Berið hrygginn fram með blönduðum kartöflum og basilíkusósu.
Basilíkusósa 1 dl hvítvín (má sleppa) 4 dl vatn 1 msk. lambakraftur ½ búnt basilíka, smátt söxuð sósujafnari 40 g kalt smjör í teningum salt og nýmalaður pipar
Hellið hvítvíni og vatni í ofnskúffuna með lambinu þegar 5 mínútur eru eftir af eldunartímanum og bakið lambið áfram í 5 mín.
Hellið soðinu í pott ásamt lambakrafti og basilíku og þykkið með sósujafnara.
Takið pottinn af hellunni og bætið smjöri saman við.
Hrærið í þar til smjörið er bráðnað og smakkið til með salti og pipar.
|
|