Tandoori LambLýsingÞessi uppskrift er úr smiðju kokkanna á Austur-Indíafjelaginusem er hvað þekktasta indverska veitingahúsið hérlendis. Lambakjöt er mikið notað í indverskri matseld og íslenska lambakjötið fellur vel að henni. Austur-Indíafjelagið rekur einnig Austurlandahraðlestina þar sem hægt er að panta mat til að taka með heim.Hráefni1 kg lambafillet
250 ml AB mjólk 1 msk engifer-mauk 1 msk hvítlauks-mauk 2 msk sítrónusafi 1 msk garam masala 1.5 msk cumin powder 0.5 msk chilli powder 2 msk matarolía 1 msk salt LeiðbeiningarHreinsið og skerið lambið í 5cm teninga. Marinerið lambið í hvítlauks og engifer maukinu, sítrónusafanum, olíunni og saltinu. Látið standa í 30 mín og bætið við restinni af hráefninu. Marínerið í 3-4 klst. Tilbúið á grillið. Mín einkunn |







