Uppskriftasafnið mitt
Bta í uppskriftasafn
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Lambahryggur - fylltur í smjördeigi

Lambahryggur - fylltur í smjördeigi

Lýsing

Frábær uppskrift fyrir hátíðarborðið!

Hráefni

í stuttu máli
Erfiðleikastig
Eldunaraðferð
Hluti
Skammtar
6
Lambahryggur á beini
2 pakkar smjördeig
3 box sveppir
10 döðlur
50 g beikon
2 dl rjómi
1 búnt steinselja
2 egg

Leiðbeiningar

Úrbeinið hrygginn, nýtið allt kjötið, fitu og sinuhreinsið.

Skerið sveppi, döðlur og beikon smátt og steikið létt á pönnu.

Hellið rjóma yfir og sjóðið niður. Brúnið kjötið á pönnu í smjöri. Þerrið á stykki. Gætið þess að fletja ekki út smjördeigsplöturnar, leggið þær hlið við hlið og þrýstið börmunum saman með fingrunum.

Leggið hryggfylluna (fille) hlið við hlið ofaná helminginn af smjördeiginu og lundina á milli. Smyrjið sveppablöndunni yfir allt kjötið. Penslið deigið með eggi og leggið hinn helminginn af smjördeiginu yfir.

Þrýstið samskeytunum saman og penslið yfir allt með eggi.

Bakið í ofni við 200 - 220°C í 10 - 15 mín. Náið kjarnhita kjötsins í 50°C.

Sykurlögur fyrir kartöflur

500 g sykur
1 dl appelsínusafi
1 dl rjómi
kanill & salt á hnífsoddi.

Bræðið sykur þar til hann verður brúnn. Hellið volgum appelsínusafa útí, síðan rjómanum og kryddið með salti og kanil.

Rauðkál

1 poki niðursneitt rauðkál
500 ml rauðvín
1 grænt epli
1 skarlottulaukur
1 negulnagli
50 g flórsykur
50 g púðursykur
1 dl balsamic edik

Epli saxað smátt og sett í pott ásamt rauðkáli. Laukur afhýddur og negulnagla stungið í, hann settur í pottinn ásamt sykri, ediki og rauðvíni. Sjóðið í 1 klst.

Sósa

Bein af úrbeinuðum lambahrygg
1 tómatur
1 búnt timían (garðablóðberg)
1 gulrót
1 laukur
1 hvítlaukur
1½ blaðlaukur
1 tsk tómatmauk (puré)
1 msk smjör

Höggvið beinin og brúnið í ofni. Skerið gulrót, lauk og blaðlauk jafnt niður og látið krauma í potti með olíu og smjöri.

Setjið beinin út í ásamt vökva og sjóðið hægt í 3 - 4 klst. Sigtið og sjóðið niður um 2/3. Þeytið smjör út í og kryddið.

Borið fram á rauðkáls- og belgjabaunabeði og sykurbrúnuðum kartöflum.

Mín einkunn

Athugasemd Thg , Laugardagur, 03. apríl 2010
Hér finnst mér algjörlega vanta hvað hryggurinn á að vera stór. 1 stk. lambahryggur getur verið allavega. "Tveir pakkar" af smjördegi segir mér heldur ekki neitt. Annars lítur þetta út fyrir að vera fínt.

FORRÉTTIR

Girnilegir forréttir við öll tækifæri
image
Lesa nánar

AÐALRÉTTIR

Gómsætir lambakjötsréttir frá öllum heimsálfum
Aðalréttir
Lesa nánar

GRÆNMETISRÉTTIR

Fjölbreytt meðlæti með lambakjötinu.
image
Lesa nánar
Senda á Facebook