Lamb KormaLýsingÞessi uppskrift er úr smiðju kokkanna á Austur-Indíafjelaginusem er hvað þekktasta indverska veitingahúsið hérlendis. Lambakjöt er mikið notað í indverskri matseld og íslenska lambakjötið fellur vel að henni. Austur-Indíafjelagið rekur einnig Austurlandahraðlestina þar sem hægt er að panta mat til að taka með heim.Hráefni1 kg úrbeinað lambalæri
2 stk laukar (skornir í ræmur og brúnaðir og þvínæst maukaðir í kvörn) 4 msk maukaðar möndlur 1 msk engifer-mauk 1 msk hvítlauks-mauk 50ml rjómi 2 msk smjör 1msk garam masala 1msk cumin powder 0.5 msk turmeric powder ¼ bolli vatn LeiðbeiningarHreinsið og skerið lambið í litla teninga. Bræðið smjörið á pönnu. Bætið við maukaða lauknum og engifer og hvítlauks-maukinu. Bætið útí möndlu maukinu og 1/4 bolla af vatni. Bætið útí lambinu og salti og eldið þar til lambið er tilbúið og sósan þykknuð. Bætið rjómanum síðast og bragðið til saltið. Mín einkunn |







