Bakað lambalæri með graskeri, rósakáli og kryddjurtumHráefni1 lambalæri, helst án lykilbeins
1 msk. olía salt og nýmalaður pipar 1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir 1 tsk. tímían Penslið lambalæri með olíu og kryddið með salti, pipar, hvítlauk og tímíani. Grasker, rósakál og kryddjurtir ½ dl olía 400 g grasker, skrælt og steinhreinsað og skorið í 1 cm þykkar sneiðar 10 tímíangreinar eða 2 tsk. þurrkað tímían 5 rósmaríngreinar eða 2 tsk. þurrkað rósmarín 10 salvíublöð eða 1 tsk. þurrkuð salvía 10 hvítlauksgeirar óskrældir salt og nýmalaður pipar 20 rósakálshöfuð, soðin í saltvatni í 3 mín. og síðan snöggkæld í köldu vatni Setjið olíu í skál ásamt graskeri, tímíani, rósmaríni, salvíu, hvítlauk, salti og pipar, blandið vel saman og setjið í ofnskúffu. Leggið lambalærið ofan á og bakið í 180°C heitum ofni í 60-80 mín. Bætið rósakáli í ofnskúffuna og bakið í 10 mín. til viðbótar. Berið fram með t.d. steiktum kartöflum og bérnaise-sósu. Bérnaise-sósa 4 eggjarauður 400 g bráðið smjör 1-2 msk. bérnaise-essens 1 msk. fáfnisgras (esdragon) 1 tsk. kjötkraftur ½ tsk. worcestershire-sósa salt og nýmalaður pipar Setjið eggjarauður í skál og þeytið yfir heitu vatnsbaði þar til þær eru orðnar léttar og ljósar. Hellið smjöri saman við í mjórri bunu og þeytið vel í á meðan. Smakkið til með bérnaise-essens, fáfnisgrasi, kjötkrafti, worcestershire-sósu og salti og pipar. LeiðbeiningarMín einkunn |








