![]() Tegund réttar - Pottréttir
Þessi réttur er upprunnin í Baskahéruðum Norður-Spánar og ber ýmis einkenni þess svæðis, inniheldur m.a. paprikur, rauðvín, hvítlauk, kryddjurtir og svolítið chili. Hann er einkar bragðmikill en þó ekki sterkkryddaður.
Franskur sveitamatur af bestu gerð - lambakjöt, grænmeti, rauðvín og kryddjurtir. Best er að elda réttinn í potti sem stungið er í ofninn en einnig má sjóða hann uppi á eldavélinni.
Gómsætur indverskur karríréttur, kryddaður að norður-indverskum hætti - ekki of sterkur en það má þó vel hafa hann sterkari eða mildari eftir smekk.
Þessi réttur og íslenskt kjöt í karríi eiga satt að segja ákaflega fátt sameiginlegt nema nafnið og lambakjötið. Þetta er þó dálítið einfölduð útgáfa af indverskum karrírétti, indverskar húsmæður væru líklegar til að nota fleiri kryddtegundir en hér er gert og steikja kjötið upp úr ghee (skírðu smjöri). En rétturinn er gómsætur engu að síður. Garam masala er indversk kryddblanda, til í ótal útgáfum (nafnið þýðir bara ,,sterk blanda”) sem yfirleitt er ekki notuð út í réttinn, heldur stráð yfir hann í lokin eða þegar hann er kominn á borðið.
Á Karíbahafseyjum er reyndar allt eins líklegt að notað væri geitakjöt í þennan rétt, en hann er ekki síður góður ef notað er kindakjöt í hann. Auðvitað má líka nota lambakjöt en kjöt af fullorðnu er bragðmeira og nýtur sín betur í sterkri sósunni.
Þetta er ekki alveg hefðbundið íslenskt kjöt í karríi þar sem með því eru yfirleitt bornar fram kartöflur en ekki gulrætur en mér þykja gulræturnar þó eiga betur við, auk þess sem þær gefa sósunni aukið bragð og dýpt. Einnig er algengara að sósan sé jöfnuð með karríkrydduðum hveitihristingi en að hún sé bökuð upp en með því að brúna karríduftið örlítið í smjörinu næst bragðið betur fram.
Kjöt í karrí eins og hjá mömmu og ömmu - réttur sem flestum börnum líkar einstaklega vel við, enda er sósan mild og mjúk og kjötið meyrt og gott.
Gömul og góð íslensk gúllasuppskrift, gúllas eins og amma eldaði. Þetta gúllas er mjög gott með kartöflustöppu en það má líka hafa soðnar kartöflur með því.
Mildur, norður-evrópskur lambakjötspottréttur þar sem kjötið er soðið með grænmeti og síðan borið fram í súrsætri, rjómalagaðri dillsósu.
Mjög bragðgóður lambakjötsréttur í kókoskarrísósu, ættaður frá Suðaustur-Asíu. Kjötið er brúnað og síðan látið malla með grænmeti og kryddi í niðursoðinni kókosmjólk þar til hún er orðin að ljúffengri sósu.
Þessi lambakjöts- og hrísgrjónaréttur, sem ættaður er frá Mið-Asíu, er kannski svolítið fyrirhafnarsamur en þó einfaldur um leið og fyrirhöfnin borgar sig alveg. Hrísgrjónin eru soðin með kjötinu en ekki borin fram sér.
Einfaldur indverskættaður karríréttur með tómötum og lauk. Í staðinn fyrir karríduft mætti líka nota karrímauk úr krukku, milt eða sterkt eftir smekk.
Gómsætur pottréttur sem á rætur að rekja til Norður-Afríku og er því góður með kúskúsi en einnig væri gott að hafa með honum soðin hrísgrjón. Í staðinn fyrir lambakjöt mætti til dæmis nota kjúkling.
Lambakjötspottréttur sem margir Bretar líta á sem ,,matinn hennar mömmu" - staðgóður, heimilislegur, matarmikill og bragðgóður réttur sem flestum ætti að falla vel í geð.
Einfaldur en fremur óvenjulega samsettur ofnréttur, ættaður frá Ítalíu. Bera má réttinn fram með appelsínubátunum eða fjarlægja þá áður en hann er settur á borðið.
Ekta indverskt lambakorma, kryddað með ilmríku og sterku kryddi og látið malla með tómötum og apríkósum. Réttur fyrir fólk sem vill alvöru indverskt bragð.
Sneiðar af lambaframhrygg eru einkar bragðgott og frekar meyrt kjöt sem hentar vel til steikingar og grillsteikingar en þó ekki síður í súpur og pottrétti, til dæmis þennan spænskættaða pottrétt.
Þessi gómsæti pottréttur inniheldur kjúklingabaunir sem eru lagðar í bleyti daginn áður en það er reyndar líka hægt að nota niðursoðnar baunir og þá eru þær settar út í um leið og kartöflurnar.
Einfaldur og auðveldur pottréttur úr lambakjöti. Hér er notuð blanda af kjötsoði og mysu eða hvítvíni en einnig mætti nota soð eingöngu og bragðbæta sósuna þá e.t.v. með dálitlum sítrónusafa.
Navarra er hérað á Norður-Spáni og þar er töluvert borðað af lamba- og kindakjöti. Þessi réttur er nokkuð dæmigerður fyrir matreiðsluna á svæðinu.
|




