![]() Uppruni - Íslenskt
Íslenskt lambakjöt, kryddað með villijurtum og berjum til að fá hið eina sanna fjallabragð. Hér er notuð blóðbergsteblanda úr Aðaldal en einnig má nota ýmsar villtar kryddjurtir, innlendar eða erlendar.
Blóðmör og lifrarpylsa er ódýr og góður íslenskur matur, ekki bara á haustin, heldur allt árið. Hér er hefðbundin, einföld blóðmörsuppskrift sem allir ættu að geta farið eftir. Auðvitað má svo bragðbæta blóðmörinn á ýmsan hátt, t.d. með kryddi eða rúsínum.
Fjallagrös voru mikið notuð í blóðmör áður fyrr og komu í stað mjöls að miklu leyti. Enn er fjallagrösum stundum bætt út í blóðmör, enda eru þau mikið hollmeti.
Ljúffengt lambalæri á veisluborðið, kryddað með villtum íslenskum kryddjurtum, t.d. blóðbergi. Bragðið verður einstaklega milt og gott en hefur um leið þennan íslenska jurtakeim sem allir kunna að meta.
Kaffi - eða öllu heldur kaffilíkjör - er kannski dálítið óvenjulegt krydd á lambakjöt en á þó ljómandi vel við, til dæmis í grillkryddlög.
Lambakjöt er hráefni sem flestum þykir gott og það er tilvalið að útbúa
úr því fljótlega og góða rétti. Uppskrift frá Úlfari Finnbjörnssyni sem
birtist í klúbbablaði Gestgjafans 2007.
Að grilla við óbeinan hita þýðir að það eru engir kola- eða gaslogar beint fyrir neðan kjötið og það er því ekki hætta á að það brenni. Þetta er mjög hentug aðferð fyrir öll stærri kjötstykki.
Þegar hrátt hangikjöt er borið fram með kryddsósu af einhverju tagi þarf að gæta þess að sósan verði ekki allt of bragðsterk og kæfi bragðið af hangikjötinu gjörsamlega.
Algengt er að bera hrátt hangikjöt fram á melónusneiðum, svipað og oft er gert við parmaskinku, en það er líka hægt að búa til melónumauk og bera það fram með örþunnum hangikjötssneiðum, e.t.v. á flatbrauði eða ristuðu brauði.
Hangikjötið þarf að skera í eins þunnar sneiðar og mögulegt er. Best er að leggja kjötstykkið á bretti og skera þvert ofan af því með beittum, löngum hníf. Þá er skorið eins og vöðvaþræðirnir liggja en ekki þvert á þá. Þannig ættu að nást þunnar og fínar sneiðar.
Lambakjöt er hráefni sem flestum þykir gott og það er tilvalið að útbúa úr því fljótlega og góða rétti t.d. þegar von er á klúbbfélögum. Þessi réttur er eftir Úlfar Finnbjörnsson og birtist í klúbbblaði Gestgjafans 2007.
Stundum verða töluverðir afgangar af jólahangikjötinu og þótt það sé afskaplega gott eins og það kemur fyrir vilja margir tilbreytingu þegar að því kemur að nýta leifarnar. Það er sannarlega hægt að gera fleira en að bera kjötið fram kalt eða hita það í tartalettum; satt að segja henta margar uppskriftir sem ætlaðar eru fyrir skinku, hamborgarhrygg eða annað reykt svínakjöt ágætlega fyrir hangikjöt líka og það er óhætt að leyfa hugmyndafluginu að ráða svolítið.
Um og upp úr 1980 varð mjög vinsælt á Íslandi að grilla lambakjöt í gryfju sem grafin var í jörðina og tyrft yfir. Þetta er enn algengt, enda mjög hentug aðferð þar sem aðstæður leyfa. Gott er að krydda kjötið með nýtíndu blóðbergi.
Lambakjöt er hátíðamatur og hægt að bera fram á ýmsa vegu. Uppskrift
eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í hátíðarblaði Gestgjafans í
desember 2007.
Hangikjöt og melónur þykja eiga sérlega vel saman. Best er að skera hangikjötið sem þynnst og skera það þá eins og vöðvaþræðirnir liggja, ekki þvert á þræðina.
Hvítlaukur er krydd sem flestum þykir eiga einkar vel við lambakjöt. Það er sannarlega ekki verið að spara hvítlaukinn í þessari uppskrift en það er einmitt hann sem gerir bragðið svona gott.
Uppskrift að hægelduðum lambaskönkum í rauðvínssósu úr Gestgjafanum í febrúar 2008. Höfundur: Úlfar Finnbjörnsson.
Þetta er ekkert grín, framparturinn er eldaður í 24 klst. en hentar samtvel fyrir önnum kafið fólk. Skellið frampartinum í ofninn að kvöldi (umþað leiti sem þið viljið borða kvöldmatinn daginn eftir) og njótið þess aðkvöldmaturinn hefur séð um sig sjálfur á meðan allir voru í vinnunnieða skólanum. Frábær sunnudagssteik fyrir alla daga vikunnar og ekkispillir að stinga hvítlauksgeirunum inn í kjötið til að fá meira bragð.
Kjötsúpa er hin eina sanna íslenska súpa en það þýðir ekki að allar uppskriftirnar séu eins. Þessi súpa er hálftær en oft eru höfð grjón í henni og þá verður hún þykkari.
|




