![]() Tegund réttar - Smáréttir
Ástralir standa framarlega í nútímalegri matreiðslu á lambakjöti og í matargerð þar í landi er gjarna að finna mjög sterk áhrif frá matargerð Suðaustur-Asíu. Þetta frísklega lambakjötssalat er dæmi um slíkt.
Íslenskt lambakjöt er á meðal þeirra kjöttegunda sem spennandi er að verka með salti og kryddjurtum og borða síðan hrátt, skorið í örþunnar sneiðar. Hér er meðal annars notað blóðberg á kjötið.
Það er ekkert íslenskt sumar án íslensks lambakjöts á grillið. Hérna er
ljúffeng uppskrift eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í grillblaði
Gestgjafans 2008.
Það er ekkert íslenskt sumar án íslensks lambakjöts á grillið. Hérna er
ljúffeng uppskrift eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í grillblaði
Gestgjafans 2008.
Ljúffengt, heitt eða volgt lambakjötssalat, sett saman undir áhrifum úr ýmsum áttum. Best er að nota hryggvöðva (file) í salatið en einnig mætti nota t.d. innralærvöðva og grilla hann þá heldur lengur.
Grískur skyndibiti þar sem litlir bitar af lambakjöti eru settir inn í pítubrauð ásamt grænmeti. Hér er kjötið grillað í ofni en auðvitað má líka grilla það á útigrilli.
Þegar hrátt hangikjöt er borið fram með kryddsósu af einhverju tagi þarf að gæta þess að sósan verði ekki allt of bragðsterk og kæfi bragðið af hangikjötinu gjörsamlega.
Algengt er að bera hrátt hangikjöt fram á melónusneiðum, svipað og oft er gert við parmaskinku, en það er líka hægt að búa til melónumauk og bera það fram með örþunnum hangikjötssneiðum, e.t.v. á flatbrauði eða ristuðu brauði.
Hangikjötið þarf að skera í eins þunnar sneiðar og mögulegt er. Best er að leggja kjötstykkið á bretti og skera þvert ofan af því með beittum, löngum hníf. Þá er skorið eins og vöðvaþræðirnir liggja en ekki þvert á þá. Þannig ættu að nást þunnar og fínar sneiðar.
Lambakjöt er hráefni sem flestum þykir gott og það er tilvalið að útbúa úr því fljótlega og góða rétti t.d. þegar von er á klúbbfélögum. Þessi réttur er eftir Úlfar Finnbjörnsson og birtist í klúbbblaði Gestgjafans 2007.
Stundum verða töluverðir afgangar af jólahangikjötinu og þótt það sé afskaplega gott eins og það kemur fyrir vilja margir tilbreytingu þegar að því kemur að nýta leifarnar. Það er sannarlega hægt að gera fleira en að bera kjötið fram kalt eða hita það í tartalettum; satt að segja henta margar uppskriftir sem ætlaðar eru fyrir skinku, hamborgarhrygg eða annað reykt svínakjöt ágætlega fyrir hangikjöt líka og það er óhætt að leyfa hugmyndafluginu að ráða svolítið.
Lambakjöt er hátíðamatur og hægt að bera fram á ýmsa vegu. Uppskrift
eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í hátíðarblaði Gestgjafans í
desember 2007.
Hangikjöt og melónur þykja eiga sérlega vel saman. Best er að skera hangikjötið sem þynnst og skera það þá eins og vöðvaþræðirnir liggja, ekki þvert á þræðina.
Áður fyrr var kæfa oftast gerð úr mjög feitu kjöti og mörgum þykir hún raunar best þannig en það er líka hægt að gera hana úr tiltölulega mögru kjöti. Einnig má nota slög, þindar og fleiri ódýra bita í kæfuna.
Léttur, nútímalegur og gómsætur lambakjötsréttur á mexíkóskum nótum, réttur sem hentar sérlega vel fyrir ungt fólk sem vill litríkt meðlæti og mikið bragð.
Íslenska lambakjötið er svo meyrt og gott að stundum þarf ekki einu sinni að elda það til að unnt sé að bera það á veisluborðið. Hér er lambalundin einungis marineruð og síðan borin fram í þunnum sneiðum á brauði.
Smurkæfa sem hentar vel með grófu brauði, t.d. sem forréttur eða hádegissnarl, gjarna með t.d. ólífum, tómötum og ristaðri papriku. Hún geymist í nokkra daga í kæli í lokuðu íláti en hana má líka frysta.
Þunnt skornar sneiðar af meyru lambakjöti, snöggsteiktar og bornar fram á beði af góðum salatblöðum - sannkallaður veisluréttur, frábær sem forréttur en gæti svo sem líka verið aðalréttur, ekki síst á hlýjum sumardegi.
|




