| Þarf að fituhreinsa? |
![]() Fituhreinsun á kjöti Sumir lambakjötsbitar eru feitari en aðrir. Á kótelettum er t.d. oft nokkuð þykk fiturönd og það getur verið mjög gott að skera hana að miklu leyti í burtu áður en kjötið fer á grillið en þó er ráðlegt að skilja dálitla fitu eftir. Svo má fjarlægja alla fitu áður en kjötið er borið fram, ef óskað er. Eins er með framhryggjarsneiðar og aðra slíka bita; best er að skera burt þykkt fitulag en alls ekki hreinsa alla fitu. Sé það gert er hætt við að kjötið verði þurrt, seigt og bragðlítið. Engin ástæða er hins vegar til að fituhreinsa lambalæri, nema hvað það getur verið gott að skera burt mörfitu sem kann að hafa fylgt með þegar lærið var skorið frá hryggnum og er þá ofarlega á lærinu innanverðu. Grillaður hryggur getur brunnið illa vegna fitunnar sem bráðnar af honum og lekur niður en koma má í veg fyrir það með því að grilla hann við óbeinan hita, eins og lýst er hér neðar á síðunni, og þá er hreint engin ástæða til að fjarlægja fituna áður en hann fer á grillið. Svo er bara að fylgjast með kjötinu á grillinu, bregðast við ef logar gjósa upp og þá er enginn vafi á því að lambakjötið verður gott – hvort sem þið viljið hafa svolitla fitu með eða hreinsið hverja örðu af áður en kjötið er borðað. |