| Súpukjöt |
|
Lambakjöt, sagað í nokkuð stóra bita. Þar er gjarna um kjöt af framparti að ræða og þegar um valið súpukjöt er að ræða eru eingöngu notaðar bógsneiðar og framhryggur en í ódýrari flokkum eru m.a. bitar af hálsi, slögum og bringu. Kjötið er soðið í súpu, notað í pottrétti eða soðið og borið fram með sósu, t.d. karrísósu, en einnig gufusteikt í ofni, gjarna með ýmiss konar grænmeti.
Gott er að fitusnyrta bitana að einhverju leyti áður en þeir eru settir í pottinn en ef óskað er eftir beinlausu kjöti er best a Af súpukjöti má áætla 200-350 g á mann, allt eftir því hve mikið er af beinum og fitu á kjötinu. |