|
Úrbeinað og fyllt lambalaeri - skref fyrir skref |
|
|
1. skref
Skerið leifarnar af slaginu frá lærinu, gott er að nota það í soð.
2. skref
Skerið þétt upp við lykilbeinið og losið kjötið frá beininu.
3. skref
Snúið lærinu við og losið kjötið frá beininu með hnífnum.
4. skref
Þrýstið lykilbeininu niður til þess að opna liðinn.
5. skref
Skerið lykilbeinið frá, gott er að nota það í soð.
6. skref
Skerið þétt upp við lærlegginn og losið kjötið frá leggnum.
7. skref
Skerið á liðamótin.
8. skref
Losið kjötið frá lærleggnum.
9. skref
Snúið upp á legginn og takið hann innan úr kjötinu.
10. skref
Setjið 3/4 af fyllingunni inn í lærið.
11. skref
Stingið nokkur göt á lærið og fyllið í með restinni af fyllingunni. Kryddið kjötið með salti og pipar og bakið í 180°C heitum ofni í 50-60 mín.
« Previous
‹ PLAYBACK
STOP
PLAY ›
Næsta »
|