|
Úrbeinað lambalæri - skref fyrir skref |
|
|
1. skref
Skerið leifarnar af slaginu frá lærinu, gott er að nota það í soð.
2. skref
Skerið þétt upp við lykilbeinið og losið kjötið frá beininu.
3. skref
Snúið lærinu við og losið kjötið frá beininu með hnífnum.
4. skref
Þrýstið lykilbeininu niður til þess að opna liðinn.
5. skref
Skerið lykilbeinið frá, gott er að nota það í soð.
6. skref
Skerið upp með lærleggnum og losið innra lærið frá.
7. skref
Skerið sitt hvoru megin við lærlegginn og losið kjötið frá beininu.
8. skref
Klárt og tilbúið til steikingar.
« Previous
‹ PLAYBACK
STOP
PLAY ›
Næsta »
|