Lundir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Lundirnar eru langir og mjóir, ákaflega meyrir vöðvar sem liggja meðfram hryggnum, undir rifbeinunum. Framan af var eingöngu talað um lundir í fleirtölu á íslensku en á síðari árum, eftir að farið var að skera lundirnar frá hryggnum og selja þær stakar, er farið að nota heitið í eintölu, enda vandséð hvernig komast ætti hjá því.

Lambalundir og kindalundir eru ekki stórar, oft um eða innan við 100 g hver, en nýtast mjög vel – þær eru nærri fitulausar og aðeins þarf að skera burtu himnur áður en þær eru matreiddar. Lundirnar þurfa mjög stutta eldun, aðeins örfáar mínútur á pönnu eða grilli, og það má jafnvel skera þær í ræmur eða þunnar sneiðar, kryddleggja þær og bera fram hráar.

Yfirleitt þarf að áætla 2-3 lundir á mann ef þær eru bornar fram sem aðalréttur, jafnvel fjórar ef þær eru mjög litlar.

 

Ódýrt og gott

Úrvalsréttir sem eru léttir fyrir budduna.
Ódýrt og gott
Lesa nánar

AÐALRÉTTIR

Gómsætir lambakjötsréttir frá öllum heimsálfum
Aðalréttir
Lesa nánar

GRÆNMETISRÉTTIR

Fjölbreytt meðlæti með lambakjötinu.
image
Lesa nánar