|
Lambakjöt, sagað í nokkuð stóra bita. Þar er gjarna um kjöt af framparti að ræða og þegar um valið súpukjöt er að ræða eru eingöngu notaðar bógsneiðar og framhryggur en í ódýrari flokkum eru m.a. bitar af hálsi, slögum og bringu. Kjötið er soðið í súpu, notað í pottrétti eða soðið og borið fram með sósu, t.d. karrísósu, en einnig gufusteikt í ofni, gjarna með ýmiss konar grænmeti.
Gott er að fitusnyrta bitana að einhverju leyti áður en þeir eru settir í pottinn en ef óskað er eftir beinlausu kjöti er best a ð fjarlægja ekki beinin fyrr en eftir suðu, því að úr þeim kemur svo mikill kraftur. Bitarnir þurfa mislanga suðu en valið súpukjöt ætti þó ekki að þurfa meira en 1 klst. Ef mikið er af t.d. hálsbitum og bringubitum gætu þeir þurft heldur lengri suðu en soðið verður líka sérlega bragðmikið og gott.
Af súpukjöti má áætla 200-350 g á mann, allt eftir því hve mikið er af beinum og fitu á kjötinu.
|