UPPSKRIFTASAFNIÐ
     
Hangikjöt Prenta Tölvupóstur

Hangikjöt hefur lengi verið einhver helsti hátíðarmatur Íslendinga og í könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum kom fram að um 90% landsmanna hafa hangikjöt á borðum um jólin. Oftast er það haft á borðum á jóladag og þá gjarna kalt, þótt sumir beri það fram nýsoðið og heitt. Með kjötinu er algengast að hafa kartöfluuppstúf og grænar baunir en annað hefðbundið meðlæti er t.d. laufabrauð, gulrætur eða rauðkál. Sumir vilja fremur kartöflusalat en uppstúf með kjötinu og kartöflustappa er einnig stundum borin fram með því.

Smekkur fólks á hangikjöt er mjög misjafn. Þeir sem vilja bragðmikið  kjöt með miklu reykbragði kjósa gjarna taðreykt kjöt, reykt á hefðbundinn hátt, en þeir sem vilja milt og safaríkt kjöt kjósa e.t.v. fremur kjöt sem er helddur minna reykt. Feitt hangikjöt þótti áður fyrr herramannsmatur en nú nýtur það ekki mikilla vinsælda. Mjög magurt kjöt verður þó trúlega of þurrt eftir suðu, einkum ef notaðar eru hefðbundnar aðferðir – það er betra að dálítið af fitu fylgi með, þá verður kjötið safaríkara. Mörgum þykir feita kjötið líka bragðbetra og sumir vilja miklu fremur kjöt af framparti en læri, einmitt vegna þess að það er feitara og bragðmeira.

Kjöt sem reykt er og soðið á beini er yfirleitt bragðmeira og betra en úrbeinað kjöt og best af öllu er ef lærið er soðið heilt en ekki sagað sundur (þetta er best að gera t.d. í ofnpotti sem er þá settur á tvær eldavélarhellur). Úrbeinað kjöt, sem vafið er í rúllu og net sett utan um áður en það er reykt, er þó óneitanlega þægilegra viðfangs þegar á að skera kjötið og bera það fram.

Hangikjöt er saltað áður en það er reykt en misjafnt er hvernig það er gert; sumt er þurrsaltað, annað pækilsaltað og svo eru sumir sem sprautusalta kjötið, þ.e. sprauta saltvatni inn í vöðvann, en kjöt saltað með þeirri aðferð þykir mörgum síðra en ef notaðar eru hefðbundnari aðferðir. Mikilvægt er að söltunin sé hæfileg, kjötið má hvorki vera of lítið saltað né of mikið – saltbragðið á aldrei að vera yfirgnæfandi.

Kjötið fer svo í reykofn eftir söltun. Sumir framleiðendur hafa kjötið í stöðugum reyk í tiltölulega skamman tíma, aðrir láta það hanga lengur en láta ekki reyk leika um það allan tímann, kveikja e.t.v. upp í ofninum einu sinni á dag. Slík reyking þykir mörgum gefa betra bragð en þetta er auðvitað fyrirhafnarmeiri og kostnaðarsamari aðferð. Margir þættir hafa áhrif á hvernig kjötið reykist og má þar nefna hitann í ofninum og rakastigið.

Að matreiða hangikjöt
Ýmsar aðferðir eru til við að sjóða hangikjöt en versta aðferðin er að hafa vatnið bullsjóðandi og sjóða kjötið of lengi – þá er nokkuð öruggt að það verður þurrt og rýrnar mikið. Miklu betra er að láta það malla við mjög hægan hita og margir nota þá aðferð að setja kjötið í pott með köldu vatni, hita það rólega að suðu og slökkva síðan undir pottinum þegar suðan er komin upp en láta hann standa á hellunni og láta kjötið kólna í soðinu. Þannig fæst mátulega soðið kjöt, mjög safaríkt og meyrt. Sumir vilja þó ívið þurrara kjöt og þá má láta það malla nokkra stund, en hver sem aðferðin er, þá er best að láta kjötið kólna í soðinu, a.m.k. nokkra stund.

Gott er að nota kjöthitamæli við suðu á hangikjötið og mæla kjarnhita (hitann í miðju stykkinu); hann á alls ekki að fara yfir 70°C og gott er að hann sé nokkrum gráðum lægri.

Þeir eru til sem gufusjóða kjötið eða steikja það í ofni við vægan hita en rétt er að athuga að kjöt matreitt með þeim aðferðum verður saltara en annað, þar sem lítið sem ekkert af salti fer út í soðið. Því er betra að velja kjöt frá framleiðendum sem salta tiltölulega lítið ef beita á þessum aðferðum. Við gufusuðu er kjötið sett á grind í potti og dálítið vatn sett í pottinn, þó ekki svo mikið að það nái upp á kjötið, og þétt lok lagt yfir. Best er að nota hitamæli til að finna hvenær kjötið er tilbúið. Ef kjöt er steikt í ofni er hitinn hafður á bilinu 100-130°C og kjötið vafið í álpappír og steikt þar til kjarnhiti er um 67°C.

Algengast er að sjóða kjötið bara í vatni en margir bæta 1-2 msk af sykri eða púðursykri út í og þykir það gefa betra bragð. Ýmislegt fleira er þó hægt að gera, t.d. bæta maltöli út í suðuvatnið, sjóða lárviðarlauf, lauk eða annað grænmeti með. Þeir eru líka til sem sjóða gular baunir með hangikjötinu en þá eru það pokabaunir, þ.e. baunirnar eru settar í grisjupoka sem settur er út í pottinn með kjötinu. Baunirnar taka í sig bragð af kjötinu og eru svo hrærðar með smjöri og borðaðar með. hangipin.jpg

Afganga af soðnu hangikjöti má nýta á ýmsan hátt. Algengast er að bera kjötið fram eins og það kemur fyrir, t.d. með laufabrauði og smjöri, eða skera það í bita, hræra því saman við kartöflujafning og grænmeti og bera fram í tartalettum. En það er hægt að gera margt annað við afgangana og í rauninni er hægt að gera flest það sama og gert er við afganga af reyktu svínakjöti. Til dæmis mætti skera kjötið í sneiðar, raða því í fat og setja kartöflustöppu (ekki verra að hún sé úr sætum kartöflum) í kring, og hella e.t.v. dálítilli þunnri sósu yfir. Þetta er svo sett í ofninn og bakað þar til stappan er farin að taka örlítinn lit og kjötið er heitt í gegn. Einnig má léttsteikja kjötið á pönnu.

Gott, bragðmikið hangikjöt er líka ljómandi gott þótt ekkert sé gert við það – þ.e. það er ekki einu sinni soðið. Þá eru skornar örþunnar sneiðar af hráu hangikjöti og þær síðan bornar fram t.d. sem forréttur á ristuðu brauði með salatblöðum og graflaxsósu, eða með melónubátum, eða kryddjurtavinaigrette. Einnig má ,,grafa” hangikjötið, þ.e. núa inn í það kryddjurtum og láta liggja í nokkra daga áður en það er borið fram.

 
Senda á Facebook

FORRÉTTIR

Girnilegir forréttir við öll tækifæri
image
Lesa nánar

AÐALRÉTTIR

Gómsætir lambakjötsréttir frá öllum heimsálfum
Aðalréttir
Lesa nánar

GRÆNMETISRÉTTIR

Fjölbreytt meðlæti með lambakjötinu.
image
Lesa nánar
hydrocodone information us pharmacy phentermine 37 5mg withdrawl symptoms of cymbalta how to mix geodon zoloft and wellbutrin get phentermine delivered overnight natures viagra diflucan resistant yeast infection lexapro no sleep akane soma viagra vietnam us pharmacy no prescription ambien drug testing xanax xanax online overnight shipping buy actos withdrawing from zoloft viagra billboard effexor vs zoloft phentermine without prescription for cheap viagra or other substitute over the counter viagra ambien prescription drug buy soma online valium roche soma massage overseas valium propecia sperm xanax for fear of flying cialis ingredients food tadalafil cialis from india prozac with wellbutrin xanax available without a prescription ambien or lunesta propecia no prescription viagra safe high blood pressure buy xanax valium online florida buy cheap phentermine 37.5mg capsules xanax online discount ambien and vicodin generic cialis tadalafil soma inexpensive stopping cymbalta no prescription xenical buy phentermine cod lamictal drug rash cheap viagra uk buy hydrocodone without a prescription shipping temp synthroid online pharmacy us ambien valium addiction cheap diazepam no prescription soma institute buy valium no prescription neeeded benefits of zoloft cheap nolvadex cialis pill splitter prednisone pregnancy super cialis next day delivery cialis buy cialis australia weight loss cialis clomid no period phentermine with mastercard tramadol next day air ups long term effect of zoloft rimonabant mexico zoloft treatment depression priapism wellbutrin cheap generic 50 mg viagra meridia without a prescription vicodin and ambien cheap tramadol without prescription lexapro zyban drug for sex drive cialis pills phentermine no script purchase drug testing xanax on rx legal diazepam viagra sheet off leg stopping wellbutrin hydrocodone 10 325 lexapro dosing shelf life of xanax viagra pill splitter weaning off paxil does phentermine work lamictal coupon xanax 2 mg bars effexor and atarax phentermine online consult buy actos xenical prescription online cialis versus levitra how to quit lexapro zoloft attorney low price tramadol tramadol apap geodon medication ordering yasmin low cost viagra online accutane diary t 84 viagra buy online order viagra reliable drugstore tramadol 100 mg wellbutrin versus lexapro percecet hydrocodone paxil psoriasis viagra testosterone