Satt að segja eiga flestar kryddtegundir vel við lambakjöt, það er bara misjafnt eftir heimshlutum og réttum hvernig þær eru notaðar og með hverju. Sumar kryddtegundir passa best á karabíska grillrétti, aðrar í indverska karrírétti, enn aðrar á norður-evrópska villikryddaða lambasteik.
|
|
Lesa meira...
|
Hangikjöt hefur lengi verið einhver helsti hátíðarmatur Íslendinga og í könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum kom fram að um 90% landsmanna hafa hangikjöt á borðum um jólin. Oftast er það haft á borðum á jóladag og þá gjarna kalt, þótt sumir beri það fram nýsoðið og heitt. Með kjötinu er algengast að hafa kartöfluuppstúf og grænar baunir en annað hefðbundið meðlæti er t.d. laufabrauð, gulrætur eða rauðkál. Sumir vilja fremur kartöflusalat en uppstúf með kjötinu og kartöflustappa er einnig stundum borin fram með því.
|
|
Lesa meira...
|
Lambakjöt er vissulega afbragðsgott eins og það kemur fyrir en með því að úrbeina steikina og setja í hana einhverja góða fyllingu má gera góðan mat enn betri. Hlutverk fyllingarinnar getur verið tvíþætt. Annars vegar eru fremur matarmiklar fyllingar sem gegna hlutverki meðlætis, jafnframt því að vera hluti af steikinni. Þetta á t.d. við um ávaxtafyllingar, svo ekki sé talað um kjöt- og brauðfyllingar og þess háttar.
|
|
Lesa meira...
|
|