Lambahryggur - fylltur í smjördeigiHráefni Lambahryggur á beini
2 pakkar smjördeig 3 box sveppir 10 döðlur 50 g beikon 2 dl rjómi 1 búnt steinselja 2 egg LeiðbeiningarÚrbeinið hrygginn, nýtið allt kjötið, fitu og sinuhreinsið. Sykurlögur fyrir kartöflur500 g sykur1 dl appelsínusafi 1 dl rjómi kanill & salt á hnífsoddi. Bræðið sykur þar til hann verður brúnn. Hellið volgum appelsínusafa útí, síðan rjómanum og kryddið með salti og kanil. Rauðkál1 poki niðursneitt rauðkál500 ml rauðvín 1 grænt epli 1 skarlottulaukur 1 negulnagli 50 g flórsykur 50 g púðursykur 1 dl balsamic edik Epli saxað smátt og sett í pott ásamt rauðkáli. Laukur afhýddur og negulnagla stungið í, hann settur í pottinn ásamt sykri, ediki og rauðvíni. Sjóðið í 1 klst. SósaBein af úrbeinuðum lambahrygg1 tómatur 1 búnt timían (garðablóðberg) 1 gulrót 1 laukur 1 hvítlaukur 1½ blaðlaukur 1 tsk tómatmauk (puré) 1 msk smjör Höggvið beinin og brúnið í ofni. Skerið gulrót, lauk og blaðlauk jafnt niður og látið krauma í potti með olíu og smjöri. Setjið beinin út í ásamt vökva og sjóðið hægt í 3 - 4 klst. Sigtið og sjóðið niður um 2/3. Þeytið smjör út í og kryddið. Borið fram á rauðkáls- og belgjabaunabeði og sykurbrúnuðum kartöflum. Mín einkunn |
UPPSKRIFTIR - VEFTRÉNýjustu uppskriftirnar
|








