Lambalæri kryddað að hætti Jóa FelHráefni Kjötið
1 stk lambalæri c.a 2 til 2,5 kg 1 búnnt garðablóðberg 2 greinar rósmarin Vel af Salt og pipar Hreinsið lærið ef þið viljið. Saxið jurtirnar niður mjög smátt og kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr olíu, setjið svo kryddið á allt kjötið. Best er að láta kryddið lyggja á kjötinu í nokkra tíma eða yfir sólarhring, en þarf þó ekki nauðsinlega. Setjið kjötið í ofninn við 120° og eldið í 90 mín. Takið þá kjötið út og stillið ofninn á grill. Látið kjötið standa í c.a 15 mín. Setjið kjötið aftur inn í ofninn undir grillið í c.a 10 mín, en þá ætti að vera komin góð húð á steikina. Sósan 1 pakki flúðasveppir ½ l rjómi 1 pakki piparostur rifinn 1 msk kjötkraftur Salt og pipar 2 msk púrtvín eða koníak ef vill Rauðkálið 1 stk rauðkálshaus 1 grænt epli 2 msk smjör 2 dl rauðvínsedik 200 gr sykur 1dl sólberjasaft 1 msk rifsberjasulta 1dl vatn Salt Eplin og rauðkálið er skorið niður, þetta er sett í pott ásamt smjöri og blandað vel saman. Þá er restinni blandað saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ - 2 tíma. Hræra þarf reglulega í pottinum. Brúnaðar kartöflur 1 kg nýjar íslenskar kartöflur 150gr sykur 2 msk smjör 1 dl rjómi Sjóðið kartöflurnar og takið til hliðar. Brúnið sykurinn á víðri pönnu, setjið þá smjörið saman við og látið leysast upp. Hellið þá rjómanum sman við og lækkið hitann, setjið þá kartöflurnar saman við. LeiðbeiningarMín einkunn |
UPPSKRIFTIR - VEFTRÉNýjustu uppskriftirnar
|








