Lamba klúbbsamloka með mozzarellu og ætiþistli
Hráefni
Í stuttu máli
Erfiðleikastig
Eldunaraðferð
Hluti
Skammtar
4
12 sneiðar samlokubrauð - ristað
1 poki klettasalat
2 hvítlauksgeirar
1 búnt basilika - fersk
3 tómatar
1 stk mozzarella ostur
1 krukka ætiþistlar (þistilhjörtu)
1 msk ólífur
2 msk ólífuolía
lambakjöt - innanlæri
Leiðbeiningar
Brúnið kjötið í olíu á vel heitri pönnu.Saltið og piprið.
Eldið í ofni við 160°C þar til kjarnhiti er kominn í 65°C. Takið kjötið út á 3-5 mín., fresti og látið hvíla í 2-3 mín., í senn.
Skolið salatið og þerrið, sneiðið tómata og mozzarellu
og lambakjötið í hæfilega þunnar sneiðar.
Maukið ætiþistlana, ólífur og annan hvítlauksgeirann ásamt ólifuolíu í matvinnsluvél.
Ristið brauðsneiðarnar og nuddið þær síðan með hinum hvítlauksgeiranum.
Smyrjið 8 brauðsneiðar með ætiþistlamaukinu, raðið tómatsneiðum á 4 sneiðar, saxaðri basiliku, mozzarellu,klettasalati og annari brauðsneið þar ofaná. Leggið svo lambakjötið, ásamt klettasalati, og að síðustu ætiþistlasmurða brauðinu. Samlokan skorin horn í horn í fernt – gott að stinga grillpinnum í til að halda þeim saman.
This div will be replaced
|
|