Grilllögur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Próvens-kryddlögur:

1 sítróna • 4 msk ólífuolía • 1 msk herbes de Provence eða önnur góð kryddjurtablanda • nýmalaður pipar • salt

Safinn kreistur úr sítrónunni. Olíu, kryddjurtum, pipar og salti hrært saman við og kjötið látið liggja í blöndunni á meðan grillið er að hitna eða í allt að 1 klst við stofuhita.

Grískur kryddlögur:

1 sítróna • 2 hvítlauksgeirar • 4 msk ólífuolía • 1/2 tsk timjan • 1/2 tsk oregano (í staðinn fyrir timjan og oregano má nota grískt lambakrydd frá Pottagöldrum) • nýmalaður pipar • salt

Safinn kreistur úr sítrónunni og hvítlauksgeirarnir saxaðir smátt. Allt hrært vel saman og kjötið látið liggja í leginum í a.m.k. 2 klst og gjarna yfir nótt.

Mintukryddlögur

4 msk ólífuolía • 1 msk vínedik • 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir • 4 msk fersk mintulauf, söxuð • nýmalaður pipar

Olía og edik þeytt saman og síðan er hvítlauk, mintu og pipar hrært saman við. Kjötið látið liggja í leginum í a.m.k. 3 klst og gjarna yfir nótt.

Austurlenskur kryddlögur

4 límónur (lime) • 6 hvítlauksgeirar • 1 msk rifinn engifer • 5 msk olía • nýmalaður pipar • salt

Safinn kreistur úr límónunum og hvítlauksgeirarnir saxaðir smátt. Allt hrært vel saman og kjötið látið liggja í leginum á meðan grillið er hitað, eða í allt að 2 klst.

Teriyaki-kryddlögur

1 dl sojasósa • 1/2 dl sérrí • 2 msk púðursykur • 2 msk vínedik • 4 msk olía • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt •1 msk rifinn engifer

Allt sett í pott, hitað upp undir suðu og síðan látið kólna áður en kjötið er lagt í löginn. Marinerað í hálftíma eða lengur, jafnvel yfir nótt.

Karabískur kryddlögur

1/2 dl appelsínusafi, nýkreistur • 1/2 dl límónu- eða sítrónusafi, nýkreistur • 1/2 dl olía • 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt • 1-2 msk chilisósa, mild eða sterk eftir smekk • nýmalaður pipar • salt

Allt hrært vel saman. Kjötið látið liggja í leginum í a.m.k. 1 klst.

Hvítlaukskryddlögur

6 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt • 1 dl steinselja, söxuð • 1 msk pestósósa • 6 msk ólífuolía • nýmalaður pipar • salt

Allt þeytt vel saman, gjarna í matvinnsluvél eða blandara. Kjötið látið liggja í leginum í a.m.k. hálftíma.
 

Ódýrt og gott

Úrvalsréttir sem eru léttir fyrir budduna.
Ódýrt og gott
Lesa nánar

AÐALRÉTTIR

Gómsætir lambakjötsréttir frá öllum heimsálfum
Aðalréttir
Lesa nánar

GRÆNMETISRÉTTIR

Fjölbreytt meðlæti með lambakjötinu.
image
Lesa nánar